sumarið komið?
Jáá, ég held það bara! Það er allavegana mjög gott veður úti :)
Það vildi líka svo skemmtilega til að ég tók nokkrar vatnsblöðrir með mér í skólann í dag ;) Síðan í frímínútunum fyrir seinasta tímann ( sem að var útiíþróttir ) voru allir eitthvað úti að sóla sig, þannig að ég og Böðvar, bekkjarfélagi minn, fórum inn og fylltum nokkrar vatnsblöðrur :) Síðan fórum við út með þær og þá var bombað yfir stelpurnar sem voru í sólinni! :P
Þær voru nú ekkert alltof sáttar með það, þannig að þær ákváðu að hlaupa uppá vist og byrgja sig upp með vatnsblöðrum. Þær voru líka aðeins fleiri, þannig að ég og Böðvar fengum Árna og Hákon með okkur í lið og fórum síðan uppá vist til Böðvars. Síðan þegar að við vorum búnir að fylla fullt af blöðrum þá voru þær ennþá að fylla, þannig að við biðum eftir þeim í leyna, svaka áætlun sko ;]
Þær komu síðan út og við köstuðum í þær og þær eitthvað á móti líka og upphófst þá vatnsstríð! :P
-En það var nú bara mjög gaman að fara í svona smá vatnsstríð ;D Ég reyndar blotnaði óvenju lítið, það var aðalega Böðvar sem að rennblotnaði! hehe, enda kreisti hann líka vatnsblöðrunar yfir stelpurnar, og fékk þá að blotna á móti.
Síðan endaði skóladagurinn bara með því að allir fóru útí Brynju í íþróttatímanum og fengu sér ís! =)
en váá.. ég þarf að fara að læra *-)
b.t.w. Eurovision undankepnin á morgun.. úúú :) - ég er að pæla að kaupa mér sjónvarp hjá BT, því NÚNA vinnum við ;) (eins og er sagt á hverju ári)
En Já, íslenskan kallar..


4 Comments:
Hehehe þú og þínar vatnsblöðrur :D Snilld þegar við fórum í útilegu með saumaklúbbnum að kasta vatnsblöðrum :D Elska svona vatnsleiki þó ég verði pírruð á kalda vatninu :D En annar eru þessir leikir snilld og alltaf gaman að þeim í hlýu og góðu veðri :) Hahaha eins og í Vaglaskógi í hitti fyrra þegar við köstuðum inn á klósettin hjá fólkinu það var sniiiiiilld :D varst þú ekki annars með þá? jú hélt það :D En ég vona inilega að það verði farin önnur svona hóp útilega í sumar þótt saumaklúbburinn sé hættur :D Það er alltaf gaman að hittast svona og skemmta sér svona agalega :D Sérstaklega á kvöldin :D En jæja þetta fer að vera mjög langt hjá mér þannig ég ættla fara hætta þessu :D Samfélagfræðin kallar, maður er að byrja í prófum á morgun þannig maður verður að hafa fyrir þessu ;) En jæja vona að ég sjái þig sem fyrst Fannar minn ;* Bææj ;***
By
Andrea Ösp, at 18/5/05 20:44
Já, vá! ;D það var geeeggjað gaman í saumaklúbbsútileigunni fyrir tveimur árum! :D
Það var SVO mikil snilld þegar að við vorum að kasta inná klósettin, og líka í stelpurnar sem voru þarna á einhverju fylliríi.. hehe :)
En já! við verðum bara núna að nöldra eins og við getum í mömmum okkar, svo að við getum farið öll saman í svona útileigu aftur í sumar! ;D -Þá tökum við sko vatnsblöðrur með!! ;D =D
By
fannar, at 18/5/05 23:38
hehehe já við vælum ein og litlir hvolpar....:D HEhehehe :D En já bæææj :D;**
By
Andrea, at 19/5/05 17:41
jájá geriði það bara!!:( huh!! nei djok:) ég fer samt pottþétt ekki:S æjih þið vitið;) en ekki eins og þið munuð sakna mín:') hahaha!:D ennnn blee;)
By
Svanhildur, at 19/5/05 23:14
Sendu inn athugasemd
<< Home