fannar

föstudagur, maí 20, 2005

vá, þetta var stutt sumar..

Já, það er bara aftur kominn vetur, það var allavegana smá snjókoma áðan..
en heyrið þið,, afskaplega er EuroVision orðið slappt eitthvað! Úff, allt eitt samsæri..!

En Noregur rústar þessu þá bara! ;)





..En guð minn góður - "The war is not over, everyone knows it.
It’s just a reason to make us believe"
Ég er með þetta lag á HEILANUM! váá! ég get ekki losnað við þetta ömurlega lag!


Ég ætla þá bara að reyna að hugsa um eitthvað annað en þetta EuroVision..
Hey! þriðjudaginn 5. júli 2005, spila Foo Fighters og Queens Of The Stone Age í Egilshöll! ;D --Foo Fighters, þetta er ein af mínum uppáhalds hljómsveitum, þannig að ég ætla pottþétt að skella mér á þessa tónleika! =D
Miðasalan byrjar á Sunnudaginn, ég og Óli, bekkjarfélagi minn, ætlum að kaupa miða þá, við ætlum ekki að missa af Foo Fighters aftur!
Þannig að ég fer örugglega á 2 tónleika í sumar.. Iron Maiden, og síðan Foo Fighters og Queens Of The Stone Age sama kvöld :) Mér hlakkar til!

PRÓF, þau eru alveg að fara að skella á! byrja á fimmtudaginn í næstu viku.. það er samt bara fínt :)
Þannig að ég verða örugglega bara að læra á fullu um helgina, og næstu vikur...
en ég heyri nú kannski eitthvað í ykkur ;)

8 Comments:

  • hehehehe Noregur vinnur þetta :D ASNLEGT að íslands komst ekki áfram ;( En gangi þér vel í prófunum :D bæææj :*

    By Anonymous Andrea Ösp, at 20/5/05 20:16  

  • jamm mer langar lika á Foo Fighters...:)
    en noregur vann ekki ..þar sem keppnin er buin nuna þá veit eg það hehe:P

    By Anonymous Nafnlaus, at 22/5/05 00:08  

  • hahahha rosalega ert þú gáfuð/aður :S veit ekkert hver þetta er en vá er ég sú eina sem les bloggið þitt eða?? Vangefið fólk...:/

    By Anonymous Andrea Ösp, at 23/5/05 18:50  

  • HAHAHAHA NOREGUR VANN EKKI!!!! MÚHAHAHAHAHA!!!!:P en lagið þarna sem þú varst með á heilanum er VÍST flott!!! ógisslega fallegt(A) geggjað fallegt af þeim að hafa svona táknmál:P hehehe!=) og plííís segðu "ég hlakka til" ekki "mér hlakkar til" !!!:$:P hehe..það er svooooo vitlaust:)
    En skemmtu þér á fúfæders og því öllu;)

    By Blogger Svanhildur, at 23/5/05 19:50  

  • Æj ég veit ekki, hver hefur gaman af tveim syngjandi suðusúkkulaðum?

    Svo var ég líka að spá.. ætli það hafi verið margir heyrnalausir að horfa á þessa keppni?

    En allavega, mér fannst Noregur eiga skilið að vinna :þ
    En smekkur Evrópubúa er misgóður.. :)

    By Blogger fannar, at 23/5/05 23:28  

  • hæhæ.. ég kann ekkert á þetta er búin að skrifa þó nokkuð sinnum..;s

    By Anonymous Erla, at 24/5/05 12:45  

  • víí.. þetta heppnaðist.. ég hef gaman að 2 suðusúkkulöðum.. og fannar þeir voru ekki það brúnir;) þetta var geðveikt sætt hjá þeim allavegana í forkeppninni sá ekki hitt:p en jam..er engin gestabók hér?:s:s

    By Anonymous Erla,;;D;D, at 24/5/05 12:48  

  • Þeir voru þá bara hvítt súkkulaði!!:D hehehe(A) mér fannst þeir reyndar ekkert svakalega sætir:S reyndar var annar þeirra helvíti myndarlegur;) en já, ég held að heyrnarlausir horfi alveg á þetta!:O allavega framvegis:') það verður örugglega geggjað vinsælt að hafa táknmál í laginu næsta ár:') svona eins og það voru nærri því ALLIR með trommur/trumbur eða hvað það heitir í laginu sínu þetta árið:P bara afþvi að Ruslana var með þannig og hún varð geggjað vinsæl:D:P ennnnnnn farðu að blogga bara!;)

    By Blogger Svanhildur, at 25/5/05 18:39  

Sendu inn athugasemd

<< Home