fannar

sunnudagur, júní 12, 2005

JáJá.

Aldeilis getur maður verið óheppin stundum.. Ég var að koma heim rétt áðan, var frekar svangur og ætlaði að gá hvort það væri ekki eitthvað ætilegt inní ískap. Þá mundi ég allt í einu eftir einni Pepsi DÓS sem að ég hafði látið inní frystinn um sexleytið, því ég ætlaði aðeins að kæla hana fyrir kvöldmatinn :) En síðan þegar að kvöldmaturinn kom, þá var ég búin að steingleyma Pepsi dósinni og fékk mér eitthvað allt annað að drekka! -en já, eins og ég sagði þá mundi ég allt í einu eftir dósinni, opnaði kælinn, sá þar fagurbláa Pepsi DÓS, en þegar að ég opnaði hana þá sprakk lokið af og einhverskonar Pepsi klaki og froða frussaðist út um allt eldhús! Á gólfið, og smá á veggina :S Og mamma og pabbi eru sko eitthvað smá úti núna, þannig að ég þurfti að þrífa allt ALVEG einn! -Ég var bara að klára það núna rétt áðan... gólfið er reyndar geggjað klístrað núna *-) En æj.. þetta verður bara skúrað á morgun, - Annars var eitthvað eftir í dósinni og það smakkaðist bara ágætlega sko ;) Svona Cola krap eitthavð :) ..ég mæli samt ekki með að þið prófið þetta, allavega ekki með dós! :)
En þetta er samt ekki það eina sem ég hef sullað niður undanfarið.. =S Það var neflilega seinustu helgi sem ég ætlaði að fá mér skyrdrykk, og það á alltaf að hrista hann smá :) En ég var eitthvað að kasta honum bara, ég þarf alltaf að vera að kasta öllum hlutum eitthvað.. *-) Síðan í einu kastinu á miðju eldhúsgólfinu þá greip ég ekki drykkin.. ( þetta var svona "skyr.is" drykkur ) og fernan sprakk bara! :O -ég fattaði ekki alveg strax að taka hana upp, þannig að það kom bara skyr pollur á gólfið.. :/ og viti menn, mamma og pabbi voru í einhverri búð, þannig að ég þurfti að þrífa þetta algjörlega einn, og það var leiðinlegt og frekar subbulegt.. :/
-Þannig að ég er að pæla að hætta þessari tilraunastarfsemi í bili, allavega :) áður en það gerist eitthvað verra. Reyna bara að borða eins og venjulegur maður :)

En hérna, nóg um þetta allt saman.
- Ég er byrjaður að vinna. Það gerðist á fimtudaginn, og var ég að þökuleggja.
Þetta er fínt, útivinna og svona :) Síðan er alveg nóg að gera þarna.. vinnum oftst frá 07:30 - 18:00 eitthvað þannig, samt mismunandi. Það er líka vinna á laugardögum, ég var að vinna í morgun.

Trommusettið mitt kemur til Rvk. á mánudaginn, loksins ;D Þannig að þetta er allt að koma :)

Andrés er að fara til Portúgals á mánudaginn...! Svindlarinn :þ

Hey já, síðan var ég að spá í eitt..
Er virkilega hægt að sleppa að borða nammi og gos ALVEG ? =S
Ég var búinn að ákveða að sleppa öllu nammi og svona á mánudaginn, og það gekk bara vel að standa við það út vikuna.. en síðan í dag þá kom bróðir minn heim með fullan nammipoka! :C -Síðan var hann alltaf að bjóða mér.. *-) Hvað gat maður gert..
En JúJú, það er alveg hægt að halda þessi í hófi er það ekki bara? :) Það er allavega ómögulegt að sleppa öllu svona..

En það er orðið áliðið.. ábyggilega allir hættir að lesa, ef þá að það les þetta einhver,
Hafið það bara gott ;)

V.á.m.. Ég var í klippingu.. hef ekkert meira um það að segja.

kV. fAnNaR

7 Comments:

  • hææjjj:D Hahahaha váááááá hvað þú ert misheppnaður náungi..:') HAHAHA..:') En já svona erum við bara, aðrir misheppnaðir en aðrir..:) En guuuð ég þarf líka að hætta að borða nammi og drekka gooos en það gengur ekki hjá mér ..;( Mjöög erfitt finnst mér en ég reyni..:D En verð að fara bæbæ:D B.T.W nýtt blogg hjá mér :D

    By Anonymous Andrea Ösp, at 12/6/05 18:45  

  • heheh juju eg las þetta:P eeen skemmtu þer bara e-ð. veitekki hvað eg get sagt:') blee;)

    By Blogger Svanhildur, at 12/6/05 18:50  

  • nei nei,, ég er ekkert misheppnaður, er það? -bara smá óheppni þarna.. :)

    By Anonymous Fannar, at 12/6/05 19:51  

  • hehe jájá höfum það bara þannig=) þú ert ekkert misheppnaður;) hehehe:P

    By Blogger Svanhildur, at 13/6/05 18:48  

  • ehe.. hvað er þetta? :O
    þetta hljómar ekkert geggjað trúverðugt! :) Jújú, kannski, æjj

    By Blogger fannar, at 13/6/05 22:01  

  • blabla!

    By Blogger Svanhildur, at 13/6/05 22:24  

  • halló halló ! :D okey... já vinurinn þú ert misheppnaður eins og ég!!:') en jæja.. það er EKKI hægt að borða nammi.. eða ég get það ekki allavegana.... gaur, ekki fikta í matnum þínum svona mikið eef að þú villt ekki lenda í einhverju verra mar!;p en jam hef ekkert meira að segja ;) keep on blogging:D

    By Anonymous erla old, at 16/6/05 18:36  

Sendu inn athugasemd

<< Home